Um okkur
Endurskoðun Vestfjarða ehf. var stofnuð árið 2004 í Bolungarvík. Fyrirtækið hafði frá árinu 1990 verið starfandi undir nafninu Löggiltir Endurskoðendur Vestfjörðum ehf. með starfsstöðvar í Bolungarvík, Ísafirði og á Hólmavík. Árið 2004 skiptust Löggiltir endurskoðendur Vestfjörðum ehf. upp í tvö fyrirtæki, annað hélt áfram undir sama nafni með starfsstöð á Ísafirði og hitt er Endurskoðun Vestfjarða í Bolungarvík.
Þann 1. desember 2009 keypti Endurskoðun Vestfjarða rekstur Löggiltra endurskoðenda Vestfjörðum á Ísafirði.
Þann 1. febrúar 2020 keypti Endurskoðun Vestfjarða rekstur Íslenskra endurskoðenda Vestfjörðum ehf. á Ísafirði og rekur nú þessar endurskoðunarskrifstofur undir heitinu Endurskoðun Vestfjarða ehf. með starfsstöðvar að:
Aðalstræti 19 í Bolungarvík
Hafnarstræti 9 á Ísafirði
Deloitte hf. gerðist hluthafi í Endurskoðun Vestfjarða í ársbyrjun 2010.
Endurskoðun Vestfjarða starfar í samstarfi við Deloitte hf. Deloitte er eitt af fremstu fyrirtækjum í heimi á sviði endurskoðunar og ráðgjafar. Samstarfið felst meðal annars í því að fá afnot af ýmsum hugbúnaði, svo sem uppgjörs- og endurskoðunarkerfi ásamt aðgangi að sérfræðingum og fræðslustarfi. Endurskoðun Vestfjarða útvistar nokkrum verkefnum til Deloitte en það eru í flestum tilvikum sérhæfð verkefni.
Eigendur
Eigendur Endurskoðunar Vestfjarða ehf. eru sjö, þar af eitt endurskoðunarfyrirtæki og tveir löggiltir endurskoðendur og starfa þeir hjá félaginu.
Eigendur félagsins eru (birt skv. lögum nr. 18/1997 með síðari breytingum):
Bjarki Bjarnason, Sindragötu 4a, Ísafirði
Deloitte ehf., Smáratorgi 2, 201 Kópavogur
Elín Jónína Jónsdóttir, Holtabrún 1, 415 Bolungarvík
Guðmundur E. Kjartansson, Sundstræti 36, 400 Ísafirði
Jón Þorgeir Einarsson, Höfðastíg 14, 415 Bolungarvík
Margrét Högnadóttir, Sundstræti 36, 400 Ísafirði
Vestur ehf., Höfðastíg 18, 415 Bolungarvík
Gagnsæi
Endurskoðunarfyrirtæki sem hafa ekki með höndum endurskoðun eininga tengdra almannahagsmunum þurfa ekki að birta skýrslu um gagnsæi. Endurskoðun Vestfjarða ehf. endurskoðar engar einingar tengdar almannahagsmunum.