Endurskoðun Vestfjarða býður víðtæka þjónustu í þeim málum sem snerta fyrirtækjarekstur og einstaklinga. Endurskoðun, gerð árs- og árshlutareikninga, gerð rekstrar- og skattframtala, bókhaldsþjónusta og launavinnsla, rekstraráætlanir, stofnun og slit félaga og önnur ráðgjafaþjónusta.

Persónuleg þjónusta í fyrirrúmi

Við nýtum okkur faglega þekkingu til að ná sem bestum árangri og hagkvæmni fyrir viðskiptavininn. Við erum lítið fyrirtæki með afbragðs þjónustu og aðgang að bestu sérfræðingum hverju sinni. Persónulega þjónusta er í fyrirrúmi og viðskiptavinurinn hefur ávallt greiðan aðgang að starfsfólki.

Endurskoðun Vestfjarða á Ísafirði flytur í nýtt húsnæði.

Skrifstofa Endurskoðunar Vestfjarða ehf. á Ísafirði er flutt í nýtt húsnæði.  Skrifstofan sem er til húsa að Hafnarstræti 9 flytur sig nú upp á 3. hæð, í aðeins stærra húsnæði sem hýsti áður VesturVerk ehf.  Um leið sameinast skrifstofurnar á Ísafirði, en Bjarki...

read more

Lokað vegna árshátíðarferðar

Vegna árshátíðarferðar starfsfólks Endurskoðunar Vestfjarða verður skrifstofan á Ísafirði lokuð frá hádegi 8. október til og með 17. október.  Skrifstofan í Bolungarvík verður opin frá kl. 8 - 14 virka daga á meðan. Ef erindið er áríðandi er hægt að ná í okkur: Jón...

read more

Lokað vegna námskeiðs

Skrifstofur okkar í Bolungarvík og á Ísafirði verða lokaðar dagana 18. og 19. desember vegna námskeiðs starfsfólks. Hægt að er senda póst til jon@endvest.is og elin@endvest.is

read more

Lokað vegna námskeiða

Skrifstofur okkar í Bolungarvík og á Ísafirði verða lokaðar vegna námskeiða starfsfólks frá kl. 10.30 til 13.30 dagana 6., 7., 12 og 13. des 2017.

read more

Lokað föstudaginn 17. nóvember 2017

Vegna námskeiðs starfsfólks verða skrifstofur okkar í Bolungarvík og á Ísafirði lokaðar föstudaginn 17. nóvember frá kl. 10.00 til kl. 15.30. Hægt er að ná í okkur í eftirfarandi símanúmer: Jón Þorgeir 846-0646 Elín 891-7086 Guðmundur...

read more

Endurskoðun

Í gegnum tengingu sína við Deloitte fær Endurskoðun Vestfjarða aðgang að nýjustu aðferðum við endurskoðun. Endurskoðun Vestfjarða notar alþjóðlegan hugbúnað sem Deloitte hefur þróað, AS/2, sem tryggir samræmd og öguð vinnubrögð við endurskoðun á alþjóðavísu.

Reikningsskil

Helstu verkefni Endurskoðunar Vestfjarða á sviði reikningsskila eru gerð árs- og árshlutareikninga, ráðgjöf á sviði reikningsskila og alþjóðlegir reikningsskilastaðlar (IFRS). Við bjóðum viðskiptavinum okkar faglega og áreiðanlega þjónustu á sviði reikningsskila.  Í gegnum tíðina höfum við byggt upp víðtæka þekkingu og reynslu á starfsumhverfi viðskiptavina okkar.

Skattaráðgjöf

Helstu verkefni Endurskoðunar Vestfjarða á sviði skattaráðgjafar eru skattframtöl einstaklinga og fyrirtækja, skattaskipulagning rekstrar og eigna fyrir einstaklinga og fyrirtæki og aðstoð vegna ágreinings við skattayfirvöld. Deloitte á Íslandi starfar á alþjóðlegum vettvangi.  Með samstarfi okkar höfum við aðgang að skattasérfræðingum Deloitte sem veita ráðgjöf um réttindi íslenskra og erlendra skattaðila, tvísköttunarmál og fleira.

Hafðu samband

Við erum alltaf tilbúin að veita þér aðstoð. Sendu okkur tölvupóst eða hafðu samband við starfsstöðvar okkar:
Bolungarvík í síma 450-7900 • Ísafjörður í síma 450-7910